Sunekos

Sunekos meðferðin er vinsælasta meðferðin hjá okkur.

Þar sem Sunekos er hrein hyaluronicsýra & aminosýra blandaðar saman þá er hægt að sprauta þessu efni í enni, kinnar, hálsinn og undir augun. Þetta minnkar bláma og bólgur undir augunum, sléttir úr fínum línum, veitir raka og ljóma í húðina. Sunekos örvar frumur (fibroblasts) í húðinni sem framleiða collagen & elastin. Þetta er frábært efni fyrir þá sem vilja endurnýja unglegt útlit og náttúrulegt yfirbragð þar sem þetta er án fylliefna og toxins. Efninu er sprautað rétt undir húðina á þeim stöðum sem fólk kýs að fá efnið og það dreifir svo úr sér. Ekki er vitað til að nokkur hafi fengið ofnæmi fyrir þessu efni, en á stungustaðnum getur þú orðið marin og bólgin/n sem varir alla jafna ekki í langan tíma en er þó einstaklingsbundið. Svo mælt er með því að koma ekki við stungustaðinn í 4klst eftir meðferðina og nota einungis rakakrem fyrstu sólarhringinn.